Persónuvernd
Fyrirliði
Fyrirliði er frumgerð í prófun, ekki fullbúin vara. Gögn geta þurft að endurstillast eða eyðast meðan á prófunartímabilinu stendur, og appið hefur ekki enn farið í gegnum fulla öryggis- eða lögfræðiyfirferð. Ekki treysta á það sem eina heimild fyrir skattskilum ennþá.
Hvað er geymt
Netfangið þitt og lykilorð (lykilorðið sjálft er aldrei geymt í hreinu formi — Supabase Auth sér um dulkóðun þess). Upplýsingar sem þú skráir sjálf(ur) inn í appið: staðan þín (verktaki/launþegi), persónuafsláttarhlutfall, skráðar greiðslur, frádráttarfærslur og myndir af kvittunum sem þú festir við þær, val á lífeyrissjóði, og leiðréttingar sem verða til þegar eldri færslum er breytt.
Hver hefur aðgang
Bara þú sjálf(ur) — gagnagrunnsreglur (Row Level Security) takmarka aðgang við þinn eigin notandaaðgang. Fyrirhugað er (ekki virkt ennþá) að þú getir boðið bókara sérstakan lesaðgang að þínum gögnum.
Hvar gögnin liggja
Gagnagrunnur, innskráning og kvittanamyndir eru hýst hjá Supabase; sjálft appið keyrir hjá Vercel. Engin gögn eru seld eða deilt með þriðja aðila í auglýsinga- eða markaðssetningarskyni.
Að eyða aðgangi
Á meðan appið er í prófun er ekki enn sjálfvirk leið í viðmótinu til að eyða aðgangi og öllum tilheyrandi gögnum varanlega — hafðu samband beint ef þú vilt fá þínum gögnum eytt.